Sofiane Boufal er á leiðinni í læknisskoðun hjá Southampton en hann verður keyptur á metfé.
Talið er að kaupverðið sé um 21 milljón punda en dýrasti leikmaður Southampton hingað til er Dani Osvaldo sem var keyptur á 15 milljónir fyrir þrem árum.
Boufal er 22 ára og frá Marokkó en hann stóð sig vel með Lille á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 11 mörk og lagði upp fimm í viðbót.
Hann er meiddur eins og er en hann mun koma til baka í september og mun hann þá spila sinn fyrsta leik fyrir enska félagið.
Athugasemdir