Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 28. ágúst 2016 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Nacer Chadli á leiðinni til WBA
Nacer Chadli er á leiðinni til WBA
Nacer Chadli er á leiðinni til WBA
Mynd: Getty Images
Nacer Chadli, leikmaður Tottenham er á leiðinni til West Brom á láni en Sky greinir frá þessu.

Tottenham keypti Chadli á sínum tíma á 7 milljónir punda en hann kom frá hollenska liðinu Twente en hann var einn af sjö leikmönnum sem komu til Tottenham eftir að Gareth Bale var seldur.

Hinn 27 ára gamli Belgi hefur alls spilað 119 leiki fyrir Spurs og skoraði í þeim 25 mörk.

Hann er hins vegar ekki í plönum Mauricio Pochettino þessa stundina og hefur hann ekki ennþá komist í leikmannahópinn á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner