Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid hrósaði James Rodriguez sérstaklega í 2-1 sigri liðsins á Celta Vigo.
Þetta var 14. sigur Madrid í röð í deildinni en Toni Kroos skoraði sigur markið þegar níu mínútur voru eftir.
James Rodriguez hefur verið orðaður frá stórliðinu en hann hefur ekki enn fengið að byrja leik á tímabilinu en hann byrjaði aðeins 17 leiki á síðustu leiktíð.
„Mér líkar vel við það sem ég sá frá James og ég get sagt að hann er ekki á leiðinni frá félaginu. Það er ekki auðvelt að eiga að koma inn á völlinn og breyta leiknum en honum tókst það."
Athugasemdir