Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2016 10:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Simone Zaza til West Ham (Staðfest)
Simone Zaza er orðinn hamar
Simone Zaza er orðinn hamar
Mynd: Getty Images
West Ham er búið að ganga frá lánssamning við Simone Zaza, leikmanni Juventus.

Ítalinn kemur á láni í eitt tímabil en West Ham hefur forkaupsrétt á leikmanninum og getur félagið keypt hann á um 20 milljónir evra eftir leiktíðina.

West Ham vantaði framherja þar sem Andre Ayew og Andy Carroll meiddust báðir í upphafi tímabils.

Zaza er 11. leikmaðurinn sem Slaven Bilic fær til West Ham í sumar.
Athugasemdir
banner
banner