Leikur SönderjyskE og Esjberg fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliðinu en ekkert mark var skoraði í fyrri hálfleik.
Í þeim síðari komu hins vegar tvö mörk. Fyrst kom Björn Paulsen Esjberg yfir en Mikael Uhre, jafnaði skömmu síðar. Þegar skammt var eftir var leikurinn hins vegar flautaður af.
Eins og staðan er núna er ekki vitað hvers vegna en við færum ykkur fregnir af því um leið og þær berast.
Uppfært
Leikurinn var kláraður og endaði hann 1-1 og spilaði Guðlaugur allan leikinn.
Athugasemdir