Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. ágúst 2016 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nottingham seldi Burke til Leipzig fyrir 15 milljónir (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hinn 19 ára gamli Oliver Burke er genginn til liðs við Red Bullz Leipzig í þýska boltanum.

RB Leipzig var stofnað árið 2009 og hefur félagið síðan þá klifið upp þýska deildarkerfið og er í fyrsta sinn að taka þátt í deild þeirra bestu.

Fraumraun félagsins í Búndeslígunni var afar jákvæð og lauk með 2-2 jafntefli gegn Hoffenheim.

Burke er skoskur kantmaður og á tvo leiki að baki fyrir A-landslið Skota. Burke hefur aðeins komið við sögu í 25 deildarleikjum fyrir Nottingham og því mikil áhætta í þessari fjárfestingu.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en fjölmiðlar bæði á Þýskalandi og Englandi vilja meina að það nemi um 15 milljónum punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner