Búið er að breyta leiktíma á leik Hauka og HK í 20. umferðinni í Inkasso-deild karla.
Liðin áttu að mætast í Kórnum laugardaginn 10. september næstkomandi.
Justin Bieber er með tónleika í Kórnum 9. september og laugardaginn 10. september er ekki hægt að spila í Kórnum þar sem verið er að ganga frá eftir tónleikana.
Leikurinn hefur því verið færður til 12. september og verður hann um leið síðasti leikurinn í 20. umferðinni.
Reiknað er með á bilinu 15-20 þúsund manns mæti á tónleika Bieber hvorn daginn.
Athugasemdir