Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. ágúst 2016 15:30
Magnús Már Einarsson
Rúnar Alex í liði umferðarinnar í Danmörku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson er í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni hjá Tipsbladet.

Rúnar hélt hreinu þegar Nordsjælland lagði Lyngby 1-0 á útivelli á föstudaginn.

Hinn 21 árs gamli Rúnar er orðinn aðalmarkvörður Nordsjælland og hann hefur staðið sig vel í byrjun tímabils.

Rúnar er núna á leiðinni í verkefni með U21 árs landsliðinu en liðið mætir Norður-Írum á föstudag og Frökkum í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner