Kristján Guðmundsson aðstoðar Guðjón
Samkvæmt heimildum okkar á Fótbolti.net verður Kristján Guðmundsson aðstoðarmaður Guðjóns Þórðarsonar hjá Keflavík. Kristján er fyrrum þjálfari Þórs þar sem hann náði frábærum árangri á þeim fjórum árum sem hann var á Akureyri. Hann tók síðan við ÍR en var þjálfari 2.flokks KR á síðasta leiktímabili.
