Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Sterling: Guardiola hefur hjálpað mér mikið
Sterling fagnar með Nolito
Sterling fagnar með Nolito
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling hefur farið vel af stað með Man City á þessu tímabili og segist hann þakklátur Pep Guardiola.

Sterling var gagnrýndur harðlega fyrir fyrsta tímabil sitt hjá Man City en koma Guardiola virðist hafa góð áhrif á enska kantmanninn.

„Stjórinn hefur verið lengi í bransanum og hann hefur unnið margt, hefur starfað með ungum leikmönnum og frábærum leikmönnum. Hann veit hvernig á að fá það besta út úr öllum."

„Hann hefur hjálpað mér mikið en ekki bara mér heldur líka hinum strákunum og öllu liðinu."

„Hann lætur alla finna að þeir séu hluti af liðinu, sama hvort þeir byrji inná eða ekki. Það eru allir mjög hungraðir og tilbúnir að hlaupa fyrir hann,"
segir Sterling.
Athugasemdir
banner
banner
banner