Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 08:33
Magnús Már Einarsson
Viðar Örn til Maccabi Tel Aviv (Staðfest)
Viðar Örn eftir undirskriftina í Ísrael.  Með honum á myndinni er Jordi Cruyff, yfirmaður íþróttamála hjá Maccabi.
Viðar Örn eftir undirskriftina í Ísrael. Með honum á myndinni er Jordi Cruyff, yfirmaður íþróttamála hjá Maccabi.
Mynd: Maccabi Tel Aviv
Ísraelska félagið Maccabi Tel Aviv hefur keypt framherjann Viðar Örn Kjartansson frá Malmö. Talið er að kaupverðið hljóði upp á 3,5 miljlónir evra.

Viðar er búinn að standast læknisskoðun hjá Maccabi Tel Aviv og skrifa undir fjögurra ára samning í Ísrael.

Viðar er markahæstur í sænsku úrvalsdeildinni í dag með 14 mörk í 20 leikjum en hann er nú farinn frá toppliði Malmö.

Maccabi Tel Aviv endaði í 2. sæti í úrvalsdeildinni í Ísrael á síðasta tímabili eftir að hafa unnið deildina þrjú ár í röð þar á undan. Liðið leikur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í ár en Maccabi er með AZ Alkmaar, Zenit Pétursborg og FH-bönunum í Dundalk í riðli.

Á meðal leikmanna Maccabi Tel Aviv eru Yossi Benayoun, fyrrum leikmaður Liverpool og Chelsea, og varnarmaðurinn Tal Ben Haim en hann lék einnig lengi í úrvalsdeildinni.

Shota Arveladze, fyrrum landsliðsmaður Georgíu, er þjálfari Maccabi Tel Aviv en Jordi Cruyff, fyrrum leikmaður Manchester United, er yfirmaður íþróttamála þar.

Hinn 26 ára gamli Viðar kom til Malmö frá kínverska félaginu Jiangsu Sainty í byrjun árs en árið 2014 var hann markakóngur í Noregi með Valerenga.
Athugasemdir
banner
banner