Football365 hefur birt lista yfir tíu leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sem leikið hafa betur en búist var við í upphafi mótsins.
Er einhver leikmaður að gleymast? Segðu þína skoðun í ummælakerfinu hér fyrir neðan.
Er einhver leikmaður að gleymast? Segðu þína skoðun í ummælakerfinu hér fyrir neðan.
10) Michel Vorm (Tottenham) - Hefur heldur betur minnt fólk á hversu góður markvörður er hann er. Verið frábær síðan Hugo Lloris meiddist.
9) George Friend (Middlesbrough) - Þó vinstri bakvörðurinn hafi verið frábær í Championship voru margir sem efuðust um að þessi kraftmikli leikmaður gæti leikið sama leik í úrvalsdeildinni. Hann hefur þaggað efasemdaraddir.
8) Victor Moses (Chelsea) - Antonio Conte hefur greinilega trú á Victori sem hefur verið lánaður í þrjú mismunandi félög á þremur síðustu árum.
7) Idrissa Gueye (Everton) - Hefur komið með góða dínamík í lið Everton og spilar betur í kringum betri leikmenn en hann hafði hjá Aston Villa.
5) Nemanja Matic (Chelsea) - Margir héldu að Matic yrði seldur þegar Kante kom en í staðinn hafa þeir tveir myndað öflugt samstarf.
4) Eric Bailly (Manchester United) - Miðvörðurinn virðist smellpassa í ensku úrvalsdeildinni og eru menn þegar farnir að bera hann saman við Rio og Vidic.
3) Curtis Davies (Hull City) - Hefur leikið það vel í vörn Hull að það hefur réttlætt landsliðssæti hjá Stóra Sam þó kallið hafi ekki komið.
2) Sadio Mane (Liverpool) - Það hefur tekið leikmenn frá Southampton tíma að finna sig hjá Liverpool en Mane er undantekningin. Fer verulega spennandi af stað og er síógnandi.
Athugasemdir