Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 30. ágúst 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Lens til Fenerbahce - Spilar í fjórða skipti undir stjórn Advocaat
Lens sáttur við komuna til Tyrklands.
Lens sáttur við komuna til Tyrklands.
Mynd: Twitter
Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur fengið kantmanninn Jermain Lens á láni frá Sunderland.

Dick Advocaat, þjálfari Fenerbahce, er vægast sagt mikill aðdáandi Lens.

Advocaat keypti Lens til Sunderland frá Dynamo Kiev á átta milljónir punda fyrir ári síðan.

Lens lék hins vegar einungis 14 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Sunderland.

Advocaat hefur áður verið þjálfari Lens hjá AZ Alkmaar og PSV Eindhoven en þeir verða nú saman hjá fjórða félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner