Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 30. ágúst 2016 15:33
Magnús Már Einarsson
Kodija til Aston Villa (Staðfest) - Metfé í Championship?
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt framherjann Jonathan Kodjia frá Bristol City á 11 milljónir punda.

Kaupverðið getur hækkað upp í 15 milljónir punda ef Kodija stendur sig vel hjá Aston Villa. Ef það gerist þá verður hann dýrasti leikmaðurinn í sögu Championship deildarinnar.

Kodija hefur skorað 20 mörk í 52 leikjum með Bristol síðan hann kom til félagsins frá Angers í fyrra.

Hjá Bristol spilaði hann með Herði Björgvini Magnússyni sem kom til félagsins í sumar.

Aston Villa var einnig að skoða Abel Hernandez, framherja Hull, en ekki náðust samningar um kaup og kjör við hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner