Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. ágúst 2016 16:19
Magnús Már Einarsson
Aguero á leið í bann - Ekki með gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært Sergio Aguero framherja Manchester City.

Aguero er ákærður fyrir að hafa gefið Winston Reid olnbogaskot í leik gegn West Ham um helgina. Andre Marriner, dómari leiksins, sá ekki atvikið.

Aguero fer líklega í þriggja leikja bann en hann getur þó reynt að áfrýja ákærunni í von um að sleppa við bannið.

Ef Aguero fer í bann þá missir hann meðal annars af grannaslagnum gegn Manchester United um aðra helgi.

Hann verður þá einnig í banni í leikjum gegn Bournemouth og Swansea.
Athugasemdir
banner
banner
banner