Calum Chambers, varnarmaður Arsenal er kominn til Middlesbrough og verður hann þar út tímabilið á láni.
Chambers byrjaði og skoraði í fyrsta leik tímabilsins á móti Liverpool en nú hefur Arsenal ákveðið að lána hann.
Hann á 36 leiki með Arsenal og hefur Chambers skorað í þeim tvö mörk. Hann kom til Arsenal frá Southampton fyrir tveim árum síðar.
Chambers er ásamt landa sínum, Jack Wilshere, ekki í plönum Arsene Wenger, stjóra Arsenal, á þessari leiktíð.
Athugasemdir