Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mariappa aftur í Watford (Staðfest)
Adrian Mariappa er kominn aftur til Watford.
Adrian Mariappa er kominn aftur til Watford.
Mynd: Getty Images
Watford hefur staðfest að Adrian Mariappa hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Watford þarf ekki að borga fyrir Mariappa þar sem hann var án félags en samningur hans við Crystal Palace var runninn út.

Hann var alls þrjú ár í herbúðum Palace en þar á undan spilaði hann 247 leiki fyrir Watford og var m.a valinn leikmaður ársins hjá Watford árið 2012.

Hinn 29 ára gamli varnarmaður getur leyst af allar stöður baka til en hann á 38 leiki fyrir Jaimaíka.

Watford er nú búið að semja við 11 leikmenn fyrir leiktíðina
Athugasemdir
banner
banner