Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. ágúst 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
N'Koudou kominn til Tottenham
Nkoudou í búningi Marseille.
Nkoudou í búningi Marseille.
Mynd: Getty Images
Georges-Keven Nkoudou er kominn til Tottenham en hann setti mynd af mottó félagsins á Twitter aðgang sinn til að staðfesta það.

Hann kemur frá Marseille en hvorugt félagið hefur staðfest það en ljóst er að félagskiptin fara í gegn áður en glugginn lokar á morgun.

Nást hafa myndir af Nkoudou í æfingagalla Tottenham í búningsklefa liðsins en talið er að Clintonn N'Jie fari í hina áttina.

Nkoudou spilaði 28 leiki fyrir Marseille á síðustu leiktíð og skoraði hann fimm mörk í þeim.
Athugasemdir
banner
banner
banner