Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 31. ágúst 2016 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Albrighton búinn að skrifa undir nýjan saming við Leicester
Albrighton fagnar með liðsfelögunum.
Albrighton fagnar með liðsfelögunum.
Mynd: Getty Images
Marc Albrighton er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Leicester.

Albrighton kom til Leicester frá Aston Villa fyrir tveim árum og hefur gjörsamlega blómstrað undir stjórn Claudio Ranieri.

Hann átti þrjú ár eftir af samningi sínum við Leicester en félagið hefur verið að semja við leikmenn nýlega og hafa leikmenn eins og Kasper Schmeichel og Jamie Vardy skrifað undir nýlega.

Albrighton hefur leikið 57 leiki með Leicester og skoraði í þeim fjögur mörk.
Athugasemdir
banner