Yevhen Konoplyanka hefur gengið til liðs við Schalke frá Sevilla en hann skrifaði undir lánssamning við þýska liðið.
Konoplyanka var mikilvægur leikmaður fyrir Sevilla á síðustu leiktíð en nýr þjálfari liðsins, Jorge Sampaoli er ekki mjög hrifinn af Úkraínumanninum en hann er partur af úkraínska hópnum sem mætir Íslendingum í næsta mánuði í fyrsta leik í undankeppni HM.
Sevilla er langt komið með að fá Samir Nasri frá Manchester City og fær Konoplyanka því leyfi til að færa sig.
Hann var eitt tímabil á Spáni og spilaði hann 54 leiki og skoraði í þeim níu mörk en félagið vann Evrópudeildina.
Athugasemdir