Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2016 23:32
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Slimani á leið til Leicester fyrir metfé
Mynd: Getty Images
Sky greinir frá því að Leicester City hefur komist að samkomulagi við Sporting CP um kaupin á alsírska sóknarmanninum Islam Slimani.

Slimani er 28 ára gamall og skoraði 27 mörk fyrir Sporting á síðasta tímabili. Þá hefur hann gert 23 mörk í 43 landsleikjum.

Kaupverðið er óuppgefið, en Sporting hafnaði 25 milljónum punda frá Englandsmeisturunum í gær.

Sky heldur því einnig fram að Leicester sé nálægt því að festa kaup á liðsfélaga Slimani, portúgalska landsliðsmanninum Adrien Silva sem vann Evrópumótið í sumar.

Silva er 27 ára gamall en myndi kosta Leicester 38 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner