Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 31. ágúst 2016 15:17
Magnús Már Einarsson
Jeff Hendrick til Burnley á metfé (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Burnley hefur keypt Jeff Hendrick frá Derby County en hann er dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Burnley hefur staðfest að um metfé sé að ræða en talið er að verðmiðinn hljóði upp á 10,5 milljónir punda.

Hinn 24 ára gamli Hendrick er írskur landsliðsmaður en hann hefur spilað með Derby allan sinn meistaraflokksferil.

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson spilar með Burnley en hann samdi við nýliðana í sumar.

Smelltu hér til að sjá öll staðfest félagaskipti
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner