Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 31. ágúst 2016 15:20
Magnús Már Einarsson
Sky: David Luiz mættur í læknisskoðun hjá Chelsea
Á leið aftur á Stamford Bridge.
Á leið aftur á Stamford Bridge.
Mynd: Getty Images
PSG og Chelsea eru að nálgast samkomulag um brasilíska varnarmanninn David Luiz.

Samkvæmt frétt Sky er Luiz mættur til London í læknisskoðun.

PSG keypti hinn 29 ára gamla Luiz frá Chelsea á 50 milljónir punda fyrir tveimur árum en hann varð um leið dýrasti varnarmaður í heimi.

Chelsea bauð 30 milljónir punda í Luiz í gær en PSG vildi fá hærri upphæð fyrir hann.

Félögin virðast nú vera að ná samkomulagi og Luiz verður líklega orðinn leikmaður Chelsea á ný áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner
banner