Argentínski landsliðsmaðurinn Ezequiel Garay er genginn til liðs við spænska stórliðið Valencia frá Zenit. Skrifaði hann undir samning til ársins 2020.
Garay er 29 ára gamall og hefur spilað fyrir Newell's Old boys í heimalandinu, Racing Santander, Real Madrid, Benfica og Zenit. Hann hafði spilað undanfarin tvö ár í Rússlandi en þrjú ár á undan með Benfica.

Garay er miðvörður og á að baki 32 landsleiki fyrir Argentínu.
Athugasemdir