Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   fös 02. september 2016 17:30
Magnús Már Einarsson
Dani Osvaldo hættur í fótbolta - Farinn í tónlistina
Osvaldo skorar í leik með Souhampton.
Osvaldo skorar í leik með Souhampton.
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Dani Osvaldo hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og snúa sér að tónlistinni.

Hinn þrítugi Osvaldo hefur verið án félags síðan Boca Juniors rak hann fyrr á árinu fyrir að reykja í búningsklefanum.

Ítalska félagið Chievo bauð Osvaldo tveggja ára samning í vikunni en hann ákvað að hafna honum og einbeita sér að því að spila með hljómsveit sem hann hefur búið til.

Osvaldo hefur átt litríkan feril en hann kýldi meðal annars samherja sinn Erik Lamela í leik með Roma eftir að hafa ekki fengið sendingu í leik árið 2011.

Osvaldo varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Southampton þegar hann kom til félagsins árið 2013 en dvöl hans þar var stutt. Hann skallaði meðal annars Jose Fonte á æfingu áður en hann var látinn fara.
Athugasemdir
banner
banner