Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
Óskar Hrafn: Ekkert grín að vera með þrjá fullvaxta karlmenn sem fá að faðma þig
Á tvo fulltrúa í íslenska liðinu - „Átti alveg von á því að hún yrði í þessum sporum"
Þorgerður Katrín: Ég hef alveg upplifað það verra
Pabbi Karólínu: Hún hafði einhverja áru yfir sér
Goðsögnin Ásta B: Þetta eru bara heimsklassa leikmenn
Kærasti Glódísar: Eigum við ekki bara að segja að það komi í ljós?
„Erfiðara að horfa á börnin mín en þegar ég var sjálf að spila"
Hemmi Hreiðars: Rosalegur karakterssigur
Aðalsteinn Jóhann: Ég hef ekki hugmynd um það
Gylfi Þór: Vonandi verður þetta jákvætt í lok tímabilsins
Lárus Orri: Frekar fúllt að labba héðan í burtu með ekkert stig
   lau 03. september 2016 17:04
Jóhann Ingi Hafþórsson
Grindavík
Gunni: Skellum okkur til Keflavíkur í Grindavíkurbúningum
Gunnar Þorsteinsson
Gunnar Þorsteinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Þorsteinsson var mjög sáttur eftir 1-0 sigur á Fjarðabyggð í dag en Grindavík fór upp í Pepsi-deildina með sigrinum.

Hann var að spila sitt fyrsta tímabil í Grindavík eftir að hafa komið til félagsins frá ÍBV og hann segir markmiðið hafa verið einfallt eftir að hann skipti um félag. Hann ætlaði að gera nákvæmnlega þetta.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Fjarðabyggð

„Við erum búnir að stefna að þessu síðan í nóvember. Ég kom til Grindavíkur á þeim forsendum að við ætluðum upp."

Illa gékk hjá Grindavík á undirbúningtímabilinu en það small ansi margt saman um leið og tímabilið sjálft hófst.

„Við unnum varla leik á undirbúningstímabilinu og það gékk mjög illa en við vorum að vinna í réttu hlutunum í staðin fyrir að spila upp á úrslit á undirbúningstímabilinu."

Við spurðum Gunnar hvernig hann ætlaði að fagna Pepsi-deildar sætinu og kom hann með smá skot á nágrannana í Keflavík.

„Menn voru eitthvað að tala um að skella sér til Keflavíkur í Grindavíkurbúningnum en við sjáum til hvernig það fer," sagði Gunnar léttur.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir