Evrópu-Innkastið - 1. þáttur tímabilsins
Það er komið að fyrsta þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið. Síðasta tímabil var einblínt á Meistaradeildina en nú eru nýjar áherslur og þátturinn er á dagskrá vikulega, í upphafi nýrrar vinnuviku.
Rætt verður um viðburði liðinnar helgar í Evrópufótboltanum þar sem enski boltinn verður í aðalhlutverki. Einnig verður rýnt í það sem framundan er.
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins en í þessum fyrsta þætti er Runólfur Trausti Þórhallsson, stuðningsmaður Manchester United, með þeim.
Umræða 1. þáttar:
Pep Guardiola og borgarslagurinn í Manchester, sigur Liverpool gegn Englandsmeisturunum, markamet Gylfa, töp Barcelona og Dortmund, Mario Balotelli, fallbarátta Pepsi-deildarinnar og fleira.
Sjá einnig:
Hlustaðu á Innkastið gegnum Podcast forrit
Hlustaðu á eldri þætti af Innkastinu
Athugasemdir