fös 07. janúar 2005 07:30
Magnús Már Einarsson
Gestur Gylfason til Keflavíkur
Gestur Gylfason í leik með Grindavík gegn Víking í sumar.
Gestur Gylfason í leik með Grindavík gegn Víking í sumar.
Mynd: umfg.is
Vinstri bakvörðurinn Gestur Arnar Gylfason er á leið til Keflavíkur en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í gærkvöldi. Gestur sem spilað hefur með Grindavík undanfarin tvö ár er samningslaus en samningur hans við Grindvíkinga rann út um áramótin.

Gestur sem varð 36 ára fyrir skömmu hefur skorað fjögur mörk í 209 leikjum í efstu deild. Öll mörkin skoraði Gestur í þeim 158 leikjum sem að hann hefur leikið með Keflavík en hann gekk til liðs við Grindavík vorið 2002 og hefur leikið með þeim síðan þá. Gestur hefur einnig leikið í Danmörku og í Noregi en síðastliðið sumar lék hann sautján leiki með Grindavík í efstu deild.

Þá hefur Bjarni Sæmundsson fyrirliði Njarðvíkinga verið að æfa með Keflavík en hann er 27 ára. Bjarni sem hefur einnig leikið með FH, Víkingi og ÍBV hér á landi skoraði eitt mark í þeim sauján leikjum sem hann lék með Njarðvík í fyrstu deild síðastliðið sumar. Bjarni er samningsbundinn Njarðvík til ársins 2005 og því mun Keflavík væntanlega þurfa að greiða fyrir hann ef þeir ætla að semja við kappann.

Þá hefur Kjartan Jóhannes Einarsson fyrrum leikmaður Keflvíkinga og Breiðabliks sést á æfingu hjá Keflavík en ekki er vitað hvort hann ætli að reyna að spila í úrvalsdeildinni næsta sumar eða hann verði áfram með Víkingi Ólafsvík sem að endaði í öðru sæti í annari deild síðastliðið sumar.
Slapp
banner
banner
banner