Luis Enrique, þjálfari Barcelona segir að 5-0 sigurinn á Sporting Gijon í dag, segi ekki alla söguna af leiknum.
Þetta var fyrsti leikurinn án Lionel Messi sem verður frá í þrjár vikur með meiðsli en Luis Suarez og Neymar skoruðu báðir í leiknum.
Staðan var 2-0 á 74. mínútu en þá missti Gijon mann af velli og var eftirleikurinn auðveldur.
„Úrslitin segja ekki alla söguna, 5-0 hljómar einfalt en þetta var alls ekki einfalt," sagði Enrique.
Athugasemdir