Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. september 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Guardiola vill sjá meira frá Aguero
Sergio Aguero skoraði tvö í dag.
Sergio Aguero skoraði tvö í dag.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, býst við ennþá meiru frá Sergio Aguero, framherja liðsins en Argentínumaðurinn skoraði tvö mörk í 3-1 sigrinum á Swansea í dag.

City er því búið að vinna alla leiki sína eftir að Guardiola tók við en þrátt fyrir að Aguero sé komin með 28 mörk í síðustu 27 leikjum, býst Guardiola samt sem áður við meiru.

„Besti framherjinn er Lionel Messi, hann skorar 50 eða 60 mörk á leiktíð. Hann er bestur en ég er mjög ánægður með Aguero.

„Hann veit samt sem áður ég vill meira og að hann getur spilað betur," sagði hinn kröfuharði Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner
banner