lau 24. september 2016 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho: Pogba verður að spila oftar svona
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Paul Pogba átti sinn besta leik hingað til fyrir Manchester United í 4-1 sigrinum á Leicester í dag en Mourinho vill sjá meira af því sama frá miðjumanninum.

Pogba, dýrasti leikmaður allra tíma, stóð sig mjög vel gegn Leicester og kórónaði hann góðan leik sinn með marki.

„Við viljum allir meira frá honum og frá liðinu. Hann verður að spila oftar svona" sagði Mourinho.

„Hann og Herrera voru flottir saman. Þeir unnu vel saman og passa saman sem miðjupar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner