Souleymane Coulibaly skoraði líklega fallegasta mark helgarinnar þegar hann kom Kilmarnock í 1-0 gegn Celtic í skosku úrvalsdeildinni í gær.
Hinn 21 árs gamli Coulibaly lét þá vaða af þrjátíu og fimm metra færi og kom Dorus De Vries í marki Celtic engum vörnum við.
Coulibaly þessi gekk í raðir Kilmarnock fyrir þetta tímabil og hefur skorað fjögur mörk í sjö leikjum en hann þótti undrabarn á sínum tíma og lagði Tottenham mikið á sig til að semja við kappann þegar hann var 17 ára gamall.
Honum tókst þó aldrei að brjóta sér leið inn í aðallið Tottenham.
Markið glæsilega kom eftir rúmlega hálftíma leik en það er óhætt að segja að stórlið Celtic hafi vaknað við þessa blautu tusku því leikurinn endaði með 6-1 sigri Celtic.
Athugasemdir