Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. september 2016 21:09
Ívan Guðjón Baldursson
Drogba fór illa með Walcott á Twitter
Mynd: Getty Images
Leikmenn Arsenal fögnuðu ansi dátt á samfélagsmiðlum eftir sögulegan 3-0 sigur á Chelsea um helgina.

Theo Walcott skoraði annað mark leiksins og tísti að leikslokum, en Didier Drogba var ekki lengi að svara honum.

Drogba reyndist Arsenal gríðarlega erfiður þegar hann var leikmaður Chelsea og höfðu þeir bláklæddu yfirleitt betur gegn erkifjendunum með Fílbeinsstrendinginn innanborðs.

„Til hamingju með sigurinn @theowalcott en það er auðvelt fyrir mýsnar að dansa þegar kettirnir eru ekki heima," skrifaði Drogba á Twitter.






Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner