banner
   þri 27. september 2016 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Hazard: Þurfum að vinna í okkar málum
Eden Hazard
Eden Hazard
Mynd: Getty Images
Belginn knái, Eden Hazard, segir Chelsea vera í vandræðum og leikmenn liðsins verði að vinna sig út úr þeim.

Chelsea steinlá fyrir Arsenal á Emirates leikvangnum síðastliðinn laugardag og hefur liðið því tapað tveim leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni.

„Þeir spiluðu vel og við verðum að gera betur. Við höfum aðeins náð í eitt stig af síðustu níu mögulegum og það er svekkjandi. Við þurfum að vinna í okkar málum og laga það sem við erum að gera rangt."

„Það eru engar afsakanir. Við vorum bara ekki nógu góðir. Við töpuðum of mörgum návígum. Við ætluðum okkur að vinna leikinn en gerum of mörg mistök,"
segir Hazard.

Athugasemdir
banner
banner
banner