Alaves 3 - 1 Granada CF
1-0 Edgar Mendez ('52 )
2-0 Victor Camarasa ('66 )
2-1 Artem Kravets ('78 )
3-1 Deyverson (´90)
1-0 Edgar Mendez ('52 )
2-0 Victor Camarasa ('66 )
2-1 Artem Kravets ('78 )
3-1 Deyverson (´90)
Nýliðar Alaves fengu Granada í heimsókn í síðasta leik sjöttu umferðar La Liga í kvöld en Alaves eru nýliðar í deildinni og hafa farið ágætlega af stað.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Edgar Mendez heimamönnum yfir snemma í síðari hálfleik. Victor Camarasa tvöfaldaði svo forystuna á 66.mínútu.
Úkraínumaðurinn Artem Kravets minnkaði muninn fyrir Granada á 78.mínútu en Deyverson gerði endanlega út um leikinn með marki á 90.mínútu.
Annar sigur Alaves á leiktíðinni staðreynd en Granada er enn í leit að sínum fyrsta sigri.
Athugasemdir