Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. september 2016 21:41
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: Dramatískur sigur Cagliari
Franck Kessie fékk beint rautt spjald
Franck Kessie fékk beint rautt spjald
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld og lauk þar með sjöttu umferð Serie A.

Fyrst fengu nýliðar Crotone heimsókn frá Atalanta en Crotone hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi leiktíðar. Það hélt áfram í kvöld því strax á þriðju mínútu voru gestirnir komnir yfir.

Staðan í leikhléi var svo orðin 3-0 fyrir Atalanta en eftir klukkutíma leik fékk ungstirnið Franck Kessie rautt spjald. Crotone náði að klóra í bakkann skömmu fyrir leikslok en lokatölur 3-1 og Crotone enn án sigurs.

Í seinni leiknum fékk Cagliari heimsókn frá Sampdoria. Joao Pedro kom Cagliari yfir eftir rúmlega hálftíma leik en Bruno Fernandes jafnaði fyrir gestina skömmu fyrir leikslok. Engu að síður náðu heimamenn í Cagliari inn sigurmarki áður en leikurinn var allur.

Cagliari 2 - 1 Sampdoria
1-0 Joao Pedro ('37 )
1-1 Bruno Fernandes ('86 )
2-1 Federico Melchiorri ('88 )

Crotone 1 - 3 Atalanta
0-1 Andrea Petagna ('3 )
0-2 Jasmin Kurtic ('40 )
0-3 Alejandro Gomez ('45 )
1-3 Simy ('86 )
Rautt spjald:Franck Kessie, Atalanta ('62)
Athugasemdir
banner
banner
banner