Sean Dyche, stjóri Burnley, var að vonum í skýjunum eftir 2-0 sigur á Watford í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Burnley komst yfir með marki eftir hornspyrnu seint í fyrri hálfleik og var sigurinn í raun aldrei í hættu.
„Mér fannst við spila mjög vel í fyrri hálfleiknum og líka snemma í síðari hálfleik."
„Við urðum eilítið stressaðir eftir það en mér fannst þeir aldrei líklegir til að ná að opna okkur," segir Dyche.
Þetta var annar sigur nýliðanna á leiktíðinni og hafa þeir nú sjö stig eftir sex umferðir.
Athugasemdir