Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 27. september 2016 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Bjarki Steinn og Viktor Marel á reynslu hjá Hammarby
Mynd: Afturelding
Tveir ungir Mosfellingar, Bjarki Steinn Bjarkason og Viktor Marel Kjærnested, æfa þessa dagana hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Hammarby.

Þeir leika báðir fyrir Aftureldingu og fór Bjarki Már Sverrisson, yfirþjálfari yngri flokka Aftureldingar, með þeim til Svíþjóðar.

Þeir munu æfa í viku með jafnöldrum sínum hjá Hammarby.

Þrír Íslendingar leika með aðalliði Hammarby en það eru þeir Ögmundur Kristinsson, Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason.
Athugasemdir
banner