Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 28. september 2016 22:23
Jóhann Ingi Hafþórsson
Wenger vildi fleiri mörk: Eina sem ég get kvartað yfir
Arsene Wenger í kvöld
Arsene Wenger í kvöld
Mynd: Getty Images
„Það voru mikil gæði hjá okkur og sigurinn var þægilegur. Eina sem ég get kvartað yfir var að við skoruðum ekki fleiri mörk," sagði Arsene Wenger eftir 2-0 sigur Arsenal á Basel í kvöld í Meistaradeildinni.

„Við spiluðum frábæran fótbolta, rétt eins og á sunnudag á móti Chelsea. Ég er sérstaklega ánægður með hraðann í fyrri hálfleik."

Theo Walcott skoraði tvö mörk í leiknum.

„Ég er auðvitað mjög ánæðgur með Walcott. Hann er að spila virkilega vel í augnabliknu. Sanchez átti góðan leik en því miður náði hann ekki að skora," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner