Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. september 2016 22:34
Jóhann Ingi Hafþórsson
Guardiola: Frábær leikur fyrir alla
Guardiola var líflegur á hliðarlínunni sem fyrr.
Guardiola var líflegur á hliðarlínunni sem fyrr.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, þjálfari Manchester City var brattur eftir 3-3 jafntefli við Celtic í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

„Þetta var frábær leikur fyrir alla. við skoruðum þrjú mörk en náðum samt ekki að vinna. Það var virkilega vel gert hjá okkur að koma svona til baka."

Þetta var fyrsti leikur City, undir hans stjórn, sem vinnst ekki.

„Manchester City er ekki með söguna í Evrópu en við verðum að búa hana til. Þetta er mikilvægur lærdómur fyrir okkur."

„Seinni hálfleikurinn okkar var betri, þeir sköpuðu sér ekkert eftir þriðja markið þeirra. Þú veist að þetta er erfið keppni þegar Celtic er í 4. styrkleika," sagði Spánverjinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner