Á myndinni eru frá vinstri; Hermann Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar, Haraldur Einar Ásgrímsson, Arnór Siggeirsson, Ágúst Hilmarsson, Ívar Reynir Antonsson og Már Ægisson.
Fram hefur samið við fimm leikmenn úr 2. flokk félagsins en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Tveir þeirra, Arnór Siggeirsson og Ágúst Hilmarsson eru fæddir 1998 og eru á sínu síðasta ári í 2. flokki.
Þrír leikmannanna, Haraldur Einar Ásgrímsson, Ívar Reynir Antonsson og Már Ægisson, eru fæddir árið 2000 og eru að hefja sitt fyrsta tímabil með 2. flokki félagsins.
„Stjórn knattspyrnudeildar Fram bindur miklar vonir við þessa leikmenn og telur að þeir eigi framtíð fyrir sér í meistaraflokki á komandi árum. Það er því fagnaðarefni fyrir knattspyrnudeild Fram að hafa tryggt sér þjónustu þessara ungu og efnilegu leikmanna." segir á heimasíðu Fram.
Meistaraflokkur Fram hafnaði í 6. sæti Inkasso-deildarinnar á liðnu tímabili.
Athugasemdir