Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 03. október 2016 10:40
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Upptaka af fréttamannafundi Heimis
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Á föstudaginn var fréttamannafundur í Laugardalnum þar sem Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari opinberaði landsliðshóp Íslands fyrir komandi leiki á Laugardalsvelli.

Finnar koma í heimsókn á Laugardalsvöll á fimmtudaginn og á sunnudaginn verða andstæðingarnir Tyrkir á sama velli.

Uppselt er á báða leikina.

Heimir og aðstoðarmaður hans, Helgi Kolviðsson, fóru aðeins yfir leikina og andstæðinga okkar í þeim.

Fótbolti.net sýndi fundinn í beinni í samvinnu við SportTv en ef þú misstir af honum er upptaka hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner