Ásgrímur á leið til Keflavíkur frá HK
Ásgrímur Albertsson varnarmaður HK er líklega á leið í Keflavík. Ásgrímur sem er 23 ára sagði við Fótbolti.net í gær að hann muni annaðhvort leika með HK eða Keflavík næsta sumar en samningur hans við Kópavogsliðið er útrunninn og því gæti Keflavík fengið hann án greiðslu.
Guðjón Þórðarson þjálfari Keflvíkinga sagði í samtali við Fótbolti.net í dag að allar líkur væru á að Ásgrímur kæmi til liðsins. Ásgrímur skoraði eitt mark í átta leikjum með HK í fyrstu deildinni síðastliðið sumar en hann missti af byrjun mótsins vegna meiðsla.
Keflavík er búið að missa marga lykilmenn og meðal þeirra er Haraldur Freyr Guðmundsson varnarmaðurinn sterki sem farinn er til Noregs í atvinnumennsku. Ásgrímur mun væntanlega fylla hans skarð í vörninni en Guðjón staðfesti að vissulega væru Keflvíkingar að leita að mönnum enda búnir að missa marga sterka leikmenn.
Aðspurður hvort hann muni fá einhverja leikmenn erlendis frá sagðist Guðjón þekkja þann markað vel en það kæmi í ljós.


