Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. september 2016 21:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Koeman: Þetta er gott stig á endanum
Koeman fagnaði vel með sínum mönnum
Koeman fagnaði vel með sínum mönnum
Mynd: Getty Images
„Þetta er gott stig á endanum. Við vörðum föstum leikatriðum og seinni boltum vel gegn mjög erfiðu liði," sagði Hollendingurinn Ronaldo Koeman, stjóri Everton, eftir 1-1 jafntefli gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hann segir að frammistaðan hjá sínu liði hafi verið mjög góð í kvöld.

„Frammistaðan hjá liðinu var stórkostleg, jafnvel þó ég hefði viljað sjá okkur skapa fleiri tækifæri."

Everton hefur byrjað tímabilið mjög vel og eru núna í þriðja sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Tottenham. Koeman er auðvitað mjög sáttur með þessa byrjun.

„Við höfum byrjað þetta tímabil vel. Staðan í töflunni er ekki allt það sem skiptir máli í augnablikinu og við verðum að bæta okkur, en við erum að standa okkur vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner