Evrópu-Innkastið - 4. þáttur tímabilsins
Það er komið að fjórða þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp. Við erum að keyra inn í landsleikjahlé en gerum upp helgina í enska boltanum ásamt því að kíka til Spánar, Þýskalands og Nice.
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins en gestur í þessum þætti er Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool. Tólf mánuðir eru síðan Jurgen Klopp tók við stjórnartaumunum á Anfield.
Umræða 4. þáttar:
Hvernig Liverpool hefur þróast undir stjórn Jurgen Klopp, dómaravesen, stjóraskipti Swansea, Balotelli-hornið, spenna á Spáni, Björn Bergmann, landsleikirnir framundan og Sammi sopi.
Sjá einnig:
Hlustaðu á Innkastið gegnum Podcast forrit
Hlustaðu á eldri þætti af Innkastinu
Athugasemdir