Sóknarmaðurinn Les Ferdinand ætlar að hætta knattspyrnuiðkun þegar sex mánaða dvöl hans hjá enska 1.deildarliðinu Reading lýkur. Þessi 38 ára leikmaður var leystur undan samingi sínum við Bolton í síðustu viku. Hann segist harðákveðinn í að skórnir fari á hilluna eftir tímabilið.
Ferdinand lék um helgina sinn fyrsta leik fyrir félagið og var það Ívar Ingimarsson sem kom í veg fyrir það að Reading tapaði með frábæru jöfnunarmarki. Leikurinn var í FA bikarnum gegn Swansea og endaði hann 1-1.
"Ég var nú að vonast eftir að eiga betri fyrsta leik fyrir félagið. Það leit út fyrir að þetta væri bara ekki okkar dagur. Sóknarmennirnir voru ekki að finna sig og þetta var ekki að falla með okkur. En Ívar jafnaði með frábæru marki, það má með sanni segja að hann hafi sýnt mér hvernig á að skora."
Já gaman að því að varnarmaðurinn Ívar geti kennt sjálfum Les Ferdinand eitthvað í markaskorun en sá síðarnefndi á 210 mörk að baki á sínum ferli, Ívar á minna.


