Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 21. október 2016 11:00
Magnús Már Einarsson
Wenger: Við búum í frumskógi þar sem allir vilja borða þig
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að leikmenn liðsins megi ekki missa sig í gleðinni þrátt fyrir gott gengi að undanförnu.

Arsenal hefur verið á flugi að undanförnu en liðið hefur unnið sjö leiki í röð í öllum keppnum.

Arsenal mætir Middlesbrough um helgina og Wenger segir að sínir menn verði að vera á tánum ef þeir ætla ekki að láta éta sig í frumskógi ensku úrvalsdeildarinnar.

„Ég trúi því að auðmýkt felist í því að skilja að þú byrjar aftur á núlli," sagði Wenger.

„Við búum í frumskógi þar sem allir vilja borða þig. Til að lifa af þarftu að vera vakandi og passa þig. Þessi keppni snýst um það."
Athugasemdir
banner
banner
banner