Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 22. október 2016 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Victor Moses: Mourinho talaði aldrei við mig
Moses hefur komið á óvart á þessu tímabili
Moses hefur komið á óvart á þessu tímabili
Mynd: Getty Images
Nígeríumaðurinn Victor Moses kann vel við það að spila undir stjórn Antonio Conte hjá Chelsea.

Moses hefur fengið mikinn spiltíma í byrjun tímabilsins og hefur verið að nýta hann vel.

Raunin var önnur hjá Moses þegar Jose Mourinho stýrði Chelsea. Sá portúgalski lánaði Moses þrisvar og leikmaðurinn segir að samskipti þeirra hafi verið lítil sem engin.

„Hann talaði aldrei við mig," sagði Moses. „Ég hugsaði með mér, 'hann hefur nú þegar sína leikmenn.'

„Ég held að við höfum talað nokkrum sinnum í síma - hann spurði mig hvort að það væri í lagi hjá Liverpool (þar sem Moses var á láni), en meira var það ekki."
Athugasemdir
banner
banner