Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 22. október 2016 15:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís Perla: Við ætlum að vinna næsta leik
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum mjög svekktar. Mér fannst við betri í þessum leik og við erum mjög svekktar með þetta," sagði varnarmaðurinn Glódís Perla Viggósdóttir eftir 1-0 tap gegn Dönum á æfingamóti í Kína í dag.

„Við vorum að spila þenna leik vel í fyrri hálfleik fannst mér og það var svekkjandi að fá svona í andlitið. Það drepur kannski á okkur, en við höfum ekki orkuna í seinni hálfleik."

En hvað getum við tekið jákvætt úr þessum leik?

„Þegar pressan okkar heppnaðist vel í fyrri hálfleik þá var hún að heppnast mjög vel og við getum tekið það með okkur áfram. Svo vorum við að ná að leysa pressuna þeirra vel í seinni hálfleik og við getum tekið það líka með okkur."

Ísland á einn leik eftir á þessu æfingamóti, en hann er gegn Úsbekistan klukkan 08:00 á mánudaginn og það er leikur sem stelpurnar ætlar að vinna.

„Já, við ætlum að vinna næsta leik," sagði Glódís að lokum.

Viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner