Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. október 2016 19:35
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Aron stangaði hann inn - Maður leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Aron Einar Gunnarsson skoraði fyrra markið af tveimur er Cardiff lagði Nottingham Forest að velli í Championship deildinni fyrr í dag.

Aron Einar skoraði með skalla og er Cardiff nú þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Aron er búinn að vera inn og út úr byrjunarliði Cardiff undanfarið, ýmist vegna meiðsla eða þjálfaraákvarðana, en hann lék allan leikinn í dag og fékk 7.5 í einkunn frá tölfræðivefsíðu WhoScored. Þá var Aron valinn maður leiksins af Sky Sports.

Mark Arons er hægt að sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner